Smáréttingar

Rétting án málningar þegar lakkið er heilt

Ekki þarf alltaf að sprauta bíl til að laga beygli. Þegar lakkið er óskemmt er oft hægt að vinna dældina til baka með nákvæmri aðferð sem kallast rétting án málningar.

Senda myndir af dæld

Hvenær hentar þessi aðferð?

Aðferðin hentar oft fyrir hurðabeyglur, minni dældir, léttar yfirborðsskemmdir og tjón þar sem lakkið hefur ekki brotnað. Hún hentar ekki alltaf ef lakk er sprungið, flötur er mjög teygður eða skemmdin er á erfiðum brúnarsvæðum. Við skoðum það áður en við mælum með lausn.

Kostir smáréttinga

  • Upprunalegt lakk helst óbreytt þegar aðferðin hentar.
  • Minni þörf á efnum og sprautun.
  • Oft einfaldara ferli en hefðbundin lakviðgerð.
  • Góð leið fyrir minni dældir og daglegar skemmdir.

Fyrir og eftir

Dæmi um smáréttingar

Raunverulegar myndir úr okkar verkstæði. Sömu dældir fyrir og eftir réttingu án málningar.

Fyrir 1
Fyrir
Eftir 1
Eftir
Fyrir 2
Fyrir
Eftir 2
Eftir
Fyrir 3
Fyrir
Eftir 3
Eftir
Verk 1

Sendu myndir fyrst

Taktu mynd nálægt dældinni, aðra mynd úr fjarlægð og eina frá hlið þar sem ljós endurkastast á fletinum. Þannig sjáum við betur lögun dældarinnar.

Senda myndir af dæld